Klukkan 14:00 föstudaginn 11. nóvhvetjum við alla til að koma saman fyrir utan sjávarútvegsráðuneytið að Skúlagötu 4 sem einnig hýsir hafrannsóknarstofnun.
Það er sorglegra en tárum tekur með ríkisstjórn sem kennir sig við norræna velferðarkerfið að fólk þurfi að standa fyrir utan ríkisstofnanir og sýna óánægju sina í verki. Sú stund er löngu runnin upp.
Við neitum að sætta okkur við mannréttindabrot íslenska ríkisins gegn sjómönnum sem fá ekki að stunda atvinnu sína nema greiða stórfé til manna útí bæ. Hvað varð um loforð um breytt fiskveiðistjórnunarkerfi? Hvað varð um loforð um frjálsar handfæraveiðar og aukna atvinnu sem þeim fylgir? Stórfeldur niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er í gangi og ríkið hefur ekki áhuga á að taka sanngjarnt auðlindagjald af fiskiauðlindinni þjóðinni allri til heilla.
Íslenska ríkið er byrjað að svipta smábátasjómenn veiðileyfi sem róa án kvóta til að mótmæla núverandi fiskveiðstjórnunarkerfi, menn sem vilja borga ríkinu veiðigjaldi. Við mótmælum þeim aðferðum að brjóta á rétti íslenskra fiskimanna til að vernda sérhagsmuni hvað þá hagsmuni bankastofnana sem á endanum eru í eigu erlendra vogunarsjóða. Burt með sérhagsmuni! Við viljum almannahagsmuni!
Komum saman á friðsaman en árangursríkan hátt, skrifum skilaboð á spjöld og höldum þeim hátt. Sjávarútvegsráðuneytinu verður afhennt skjal frá Samtökum íslenskra fiskimanna við þetta tækifæri.
Allir á árarnar – berjumst fyrir breytingum!
Samtök íslenskra fiskimanna.
Reglur um notkun umræðukerfis